Fyndið

Hún hefur hvatt til samráðs áður en þar er skelt við skollaeyrum og gert lítið úr stjórnarandstöðunni. Hún gagnrýnir aðra fyrir ráðleysi en veit samt ekki sitt rjúkandi ráð og hefur ekki gert síðan hennar tími kom.

Síðast þegar ég athugaði var þetta ríkistjórn ráðleysis, reyksprengja og reiðuleysis. Spurning hvort við bætum ekki bara við síðasta R-inu, sjórn(in) Rekinn.

Jóhanna ætti að sjá sóma sinn og víkja af þingi og ætti ekki að vera ein um það.

Það er samt eitt sem Jóhönnu(og Ingibjörgu sólrúnu) hefur láðst að gera og það er að sína Íslendingum af hverju Vinstristjórn virkar ekki og fyrir hverju þeir standa, hærri sköttum og minni velferð.


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Brynjar.

Villtu fá sjálfshælisflokkinn og Farsótt(Framsókn) aftur...??

Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 08:37

2 identicon

Helgi R. 

Eigum við að ekki að gefa okkur að menn hafi lært eitthvað á þessu hruni sem sem á sér enga hliðstæðu og geri ekki sömu mistökin tvisar:)

En það er vitað að vinstri stefna hefur aldrey virkað og mun ekki virka miðað við það sem þetta lið er að sýna okkur í dag.

Svo jú xd er mun færari í að skapa hér velmegun heldur en komarnir.

Óskar (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 10:40

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Menn hafa ekki lært neitt því miður sama óráðsían og sömu aðilarnir að stela hér öllu um há bjartan dag í skjóli flokksræðis og einkavinavæðingar!

Sigurður Haraldsson, 4.11.2010 kl. 12:18

4 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Sæll Helgi,

Lausnir vinstri manna í gegnum tíðina hafa verið; Ef fólk nær ekki endum saman_ hækka skatta, ekki næg vinna- hækka skatta, ofháir skattar-hækka skatta. Hvernig var með stjórn hina vinnandi stétta? Rétt eins og með velferðarstjórnina, þá eru þær stjórnir vinstrimanna oft þversagnir.

 Já Sigurður, ég er hræddur um að það þurfi að fara að skipta út aðeins fleirum þingmönnum. Hvaða skoðun sem menn hafa á Davíð(góða eða slæma) og einkavæðingunni á bankakerfinu þá vissi hann allavega hvert hann einkavæddi bankanna. Sú stjórn sem núsitur er því óhæfari/spilltari en nokkur önnur stjórn hingað til.

Brynjar Þór Guðmundsson, 4.11.2010 kl. 15:33

5 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mín" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband